3. sept. laugardagur.

Flogið frá KEF flug FI520 kl. 07:25 og lent í Frankfurt kl. 12:50 Rúta beið okkar og ók okkur til Cochem (ca 1 1/2 klst) þar sem við gistum næstu 7 nætur. Cochem er ein af fallegustu bæjunum við án Mosel. Íbúar eru um 5500. Falleg bindingshús eru í gamla bænum, þar er einnig ráðhúsið þeirra sem er frá 18. öld. Við gistum í Moselromantikhotel Panorama sem er rétt utan við miðbæinn.  Komun til Cochem rúmlega þrjú í sól og 32° hita, þá var byrjað að innrita okkur inn á hótelið. Við Pétur fengum frábært herbergi sem allt var með útskornum húsgögnum í svona Austurríkis stíll. Fórum síðan með Gunnu í smá göngutúr niður í miðbæ og fengum okkur bjór og hvítvín á ráðhústorginu. Örfkuðum síðan til baka upp á hótel og komum við í kaupfélaginu til að kaupa vatn og önnur drykkjarföng, náðum síðan upp á hótel rétt í tæka tíð til að þvi af okkur svitann og koma okkur í mat. Maturinn var ekki af lakara taginu, Tómatsúpa í forrétt (kröftug og góð) Pétur fékk sér svínsteik með sveppasósu og frönskum í aðalrétt, og ég fékk mér rostbeef með bernése(var frekar sinneps bernéssósa mjög góð), einnig var boðið upp á lax sem var víst mjög góður, að síðustu var boðið upp á  mjög góður ís og ferska ávexti í desert. Eftir mat voru allir orðnir þreyttir eftir langan dag og fólk dreif sig í rúmið til að vera upplagt fyrir næsta dag.

 

20160903_171506-copy
Reichsburg kastali

 

20160903_171552-copy
Reichsburg kastali

 

20160903_182337
Horft upp eftir ánni í áttina að hótel Moselromantikhotel Panorama


img_0880
Hús við aðalgötuna í Cochem

 

 

img_0885
Á þessum turni við alalgötu Cochem má sjá hæðina á vatninu þegar það flæðir yfir bakka árinnar, síðasta mæling sjá gráu línuna við innganginn, þar er efsta og síðasta mæling þann 22.12.1993

 

 

img_0892
Bindingshús í gamlabænum

 

20160903_163832-copy

20160903_163846-copy
Myndir úr herberginu


img_0873
Við Gunna tilbúnar í bæjarrölt
img_0874
Moselromantikhotel Panorama í Cochem

 

img_0875
á leið í gamlabæinn

 

img_0879
fallegt blómabeð við Mósel ánna

 

20160903_172904
Myndir frá ráðhústorginu í gamlabænum í Cochem

 

20160903_172921

20160903_180809
Bjór og hvítvín til að svala þorstanum

 

img_0889
Ein af þröngu götum gamla bæjarins


img_0887

img_0893


20160903_182406

20160903_183636
Gengið til baka upp á hótel, falleg álfasúla við göngustíginn.


4. sept. sunnudagur

Dagurinn hófst með frábærum morgunverð upp úr kl. 8. og síðan var lagt af stað upp að Reichsburg kalstala. Hafði okkur verið bent á að fara skógarstíg að kastalanum, en þegar við vorum kominn langleiðina upp þá hafði skriða fallið  úr hlíðinni niður á gönguslóðann svo við þurftum að snúa við. Gengum til baka og fundum aðra leið upp að kastalanum sem við höfðum séð deginum áður á rölti okkar niður í gamla bæinn, og var hann greiðfær. Fengum frábæra leiðsögn um 8 af 56 herbergjum kastalanns. Eftir kastalaskoðunina gengum við niður í gamla bæinn og fékk ég frábærann göngupoka í sportvöruverlun þar, á 1/2 virði miðað við verð hér heima á Íslandi. Um kl. fjögur fórum við í siglingu upp Mósel og tók sú ferð um það bil eina kl. stund. Eftir siglinguna héldum við heim á leið í sturtu og síðan í góðan kvöldverð sem var í þetta sinn  Bollion súpa, Gordon blue sem Pétur fékk sér ég fékk mér lambasteik allt mjög gott, einnig var á boðstólnum heilsteiktur silungur beinlaus (ótrúlegt enn satt) og var hann víst mjög góður, og að lokum ostakaka í desert.

20160904_100155
lagt af stað í morgungönguna
20160904_101950
gengið um götur í bænum

20160904_101149

20160904_101535
oft rekst maður á bænastaði á göngunum hvort sem það er út í náttúrinni eða í bæjargötum

 

20160904_110805

20160904_102838

20160904_102443

20160904_112112

20160904_113446

20160904_113523

img_0881
þessi litla kapella var á vegi okkar upp að kastalanum, ekki var hún nú opinn, en Pétur náði þessari mynd inn um skráargatið.

20160904_113733

 

5. september mánudagur

Fórum í góðan morgunverð og smurðum okkur nesti fyrir gönguna, gengum síðan upp með ánni Mósel að Bænum Beilstein sem er lítill og fallefur bær við ánna. Þetta voru um 10 km leið. Skoðuðum kastalarústir og settums niður á veitingahúsið í sem er þarna í kastalarústunum þar sem teigað var bæði hvítvín og bjór. Sigldum síðan til baka með ferju til Cochem. Á leiðinni þurftum við að fara í gegn um skipastiga á leiðinni. Heima á hóteli skelltum við okkur í sturtu og höfðum okkur til fyrir kvöldverðinn.

 

Related Posts

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *